12 October, 2011

Miðvikudags blaður um allt og ekkert aðallega þó ekkert


Well ó well, allt að gerast já kveikti á ofninum í gær í fyrsta sinn... var komin með rautt nef og háu ljósin á í gærkveldi... hætti að láta það trufla mig að heimilisfólkið var annað hvort bert að ofan eða á brókinni ... hell já kyndingin is ON!

Fyrir utan það er ég byrjuð í dönsku námi, já undirbúningsdanska fyrir háskólanám... er þarna á þriðjudögum frá 8-12.30, þetta er alveg DAUÐI ég ætla nú ekkert að skafa utan af því úfff ... já byrjaði í síðustu viku og það er að koma viku vetrarfrí eftir þessa viku OG ÉG GET EKKI BEÐIÐ !

Á miðvikudögum er ég svo í ensku frá 12.30-16. Já skráði mig líka í ensku einugnis í þeim tilgangi til að fá hæstu einkunn til að það líti rosalega vel út á umsókninni minni fyrir háskólann næsta ár.... og svo eru fimmtudagar enska og danska... thank god fyrir langt helgarfrí!

Önnin byrjaði líka í ágúst og ég fékk að troða mér í þetta eftir að 8 vikur voru búnar, þannig ég er bæði mállaus þarna og að mæta í miðri kennslu, þið getið rétt ímyndað ykkur hauslausa hænu og sett hana þarna og já það er sirka hvernig ég lít út í dönsku tímunum ... nema á mute ....

Reginn Þór byrjar svo hjá dagmömmu 1.nóvember. Ég er strax búin að ákveða hvernig fyrsti mánudagurinn verður eftir að hann er byrjaður þarna allan daginn, ég ætla sumsé ekki að læra heldur ætla ég að sofa frá 8-12, fá mér svo hádegismat frá 12-12.15 og sofa svo aftur til 12.15-16 og láta Geirskegg bara sækja hann...fara svo í sjúkraþjálfun til að láta laga legusárið mitt..... óhh já svefn er vanmetinn ! Ég er að segja ykkur það! Mæli með að allt barnblaust fólk bara taki sér einn dag og sofi bara ... því þið vitið aldrei hvenær þetta tækifæri kemur aftur!

Jæja þarf að fara klára þetta dönskuverkefni fyrir morgundaginn, skil ekki alveg hvernig er hægt að að skrifa 3 bls um grein sem er 1 bls! Ég bara næ þessu ekki ....yfir og út danskey kveður að sinni...

20 September, 2011

Brot frá Danmörk


Er ekki frá því að það sé aðeins farið að róast hérna lífið ... samt ekki mikið en nóg til að ég hendi inn einu bloggi af og til ! Það er að segja ef ég á e-a fans eftir hehh

Alla vegna þá er lífið mikið búið að snúast um það að koma sér fyrir .. vorum að flytja í sept og já þetta er aðeins öðruvísi en þegar maður flytur í leiguíbúð á Íslandi ... það eru alla vegna ljós í loftunum heima .. hérna eru engin ljós! Jú unskyld það eru ljós á baðherberginu og viftuljós yfir eldavélinni ! That´s it!

Einnig flytur maður sjálfur með sturtuslánna! já sumsé engin sturtuslá, þannig að fyrstu daganna var manneskjan á wc-inu að benda manni á hvort mar væri með sápu í auganu eða ekki og í fótabaði á wc-inu á sama tíma.. .dönsk baðherbergi eru svo lítil að wc-ið er yfirleitt í sturtunni næstum! Og og sturtubotnar er ekki til .. þetta er eitt stórt rými .... mjög spes .. .hendi inn myndum hérna bráðum fyrir þá allra forvitnustu og reyni að hafa e-n í sturtunni svona sem bónus !

Ég sé það virkilega svona í fjarlægðinni hvað Ísland er ógeðslega töff land með alla orkuna sína! Er mjög stolt af landinu mínu! Hérna fer maður virkilega að spá í rafmagninu og hitanum ... já það er nú ekki ókeypis. Maður er orðinn eins og allra vesti dani sem gerir allt til að SPARA rafmagnið! Lampar sem skraut tjah ekki lengur, lampar eru nú ljós til að maður sjái eitthvað og detti ekki niður stigann... já lampi er öryggisatriði núna en ekki dúllí dúllí.... eina ljósið sem við höfum sett upp er í stofunni ... ætlum ekki að setja upp fleiri .. það er lampi í Rökkva Þórs herbergi og lampi í svefnherberginu okkar og já það er nóg.



Annars er aðeins farið að kólna hérna .... já það er komið buxnaveður hérna! Húsin hérna eru ekki eins vel einangruð og heima þannig maður finnur núna fyrir gólfkulda og erum nýhætt að sofa með viftu inn í svefnherberginu .... held að ofnarnir fari ekki á fyrr en í október.. veit ekki einu sinni hvort það sé hægt að kveikja á ofnunum .. í háskólaíbúðinni sem við byrjuðum í þá var ekki hægt að kveikja á ofnunum fyrr en í okt... mjög spes! :)

Jæja yfir og út þarf að fara njóta fæðingarorlofsins svona annað slagið með því að gera EKKERT! Bara liggja upp í sófa á náttfötunum og ekki hugsa um flutninga, skólamál, barnamál né NEITT. Hej hej!

24 July, 2011

Danaveldis update



Well well hvað skal segja, erum búin að vera á fullu hérna að endurnýja húsgögnin, já allt orðið frekar lúið hérna ... var nú rétt í þessu að kaupa notaðan sony flatskjá gegnum netið ... prúttaði hann niður í 20þ átti að kosta 30þ ... fékk geðveikan móral þegar seljandinn sendi mér addressunna

"Gamle Kongevej sambýlið hjá heilabiluðum í Nörresundby"

eh já karmað mitt fór í mínus 100 stig fyrir að prútta þennan skjá af e-m heilabiluðum.... efast um að ég sofi í nótt ....

Anyway er orðin alveg rosalega dönsk .. já um daginn þegar ég fór í Super Best þá setti ég dósapoka í hjólakörfuna mína og tók með mér poka til að setja vörurnar í.

Náið þið þessu? Ég sumsé fór í Suber Best henti dósum í vél og fékk strimil upp á eitthvað x mikið og notaði upp í mat og svo já nota bene afþakkaði ég poka því ég var með minn eigin !

Rökkvi Þór sagði "vá hvað þú ert orðin dönsk mamma"

Talandi um það þá er einmitt ekki eitt ljós kveikt hérna og miðstöðin já fer ekki í gang fyrr en í október einhvern tímann .. já get lítið gert af því reyndar .... En ljósamálin já hef ekki nennt að kaupa ljósakrónur ... notumst bara við eldarvélaljósið og baðherbergisljósið .... líka low priority ...

Nú skil ég þetta með Geir og rafmagnið .... já þegar ég heimsótti hann til Köben eitt sinn og hann var í vinnunni lagði hann mikla áherslu á að ég mundi slökkva á öllu þegar ég færi út .... ég var svo metnaðarfull í þessu að ég meira segja slökkti á ísskápnum hans heh úbsí ... já hérna eru rofar út um allt ... það er ekki nóg að setja blásarann í samband ég þarf einnig að kveikja á rofanum til að straumurinn fari á og voilá blástur!

jæja yfir og út sé ekkert lengur það er orðið svo dimmt!:)

14 July, 2011

4 vikur í Álaborg allt að ske!



Nýjasta nýtt í fréttum ! Við erum komin með NÝJA ÍBÚÐ ! VÚHÚ VÚHÚ! Dansaði vægan happy dans í dag í tilefni dagsins, já vægan því síðast þegar ég dansaði happy dans þá sló ég hendinni svo fast í vegginn hjá settinu að ég brákaði litla putta og part af hendinni ... var vælandi alveg í 3 vikur út af þessu ... nýbyrjuð að geta notað litla putta til skriftar á lyklaborðinu þannig já 2falt fagnaðarefni!

Við flytjum inn í þetta litla sæta raðhús þann 15.ágúst VÚHÚ aftur!
Ég öskraði svo mikið í dag við þessar fréttir að vinur hans Rökkva Þórs varð hræddur... verð að reyna hemja mig ....

Annars fór ég í mömmó í morgun, svaka stuð. Annað kveld er svo datekveld. Já allt að gerast. Þegar við fórum að skoða eitt hús í fyrradag þá var íslensk stúlka að sýna okkur pleisið og ég spurði hana hvort hún elskaði ekki börn. Jú mikið rétt LUVES them þannig hún ætlar að koma hingað á morgun kl 20.00 og sitja yfir sofandi börnum meðan ég fer í mömmufrí ! Guð ég á það svo skilið! Er farin að spyrja hvað sé í sjónvarpinu með barnarödd þannig hlakka mjög til fullorðinskveldsins óhh já



yfir og út myndir dagins úr Farup Sommerland

13 July, 2011

Blaður ó blaður



Well maður er orðinn miklu fróðari um allt hérna á aðeins 3 vikum held ég eða hvað 4? Já eitthvað svoleiðis ... er núna t.d. hætt að kremja dósir niður í atóm já hehh þá eru þær víst verðlausar .... Geir ropaði þessu út úr sér þegar hann sá mig vera kremja dós nr.50 örugglega heh já 22kr fyrir dósina!

Er líka hætt að taka 30 mín sturtuferðir og spreða rafmagni allan daginn með því að hafa þessu einu 2 ljós kveikt ... því jú rafmagn er víst mjöööög dýrt hérna ....

Annars snýst lífið mikið um íbúðarleit ... já langar að flytja HELST Í GÆR! Takk takk.

Erum með augastað á einu raðhúsahverfi hérna rétt hjá sem okkur langar að fara í NÚNA. Álaborg er stútfull af leigumiðlunum sem maður þarf að skrá sig hjá og svo fær maður tilboð "þú hefur fengið tilboð í Hvidkeldvej nr. 55 og þú ert nr. 5 í listanum" já þá virkar það þannig að ef við segjum já þá fáum við ekki íbúðina nema allir hinir 4 á undan segja nei!

Fengum tilboð í 100fm raðhús um daginn sem mig langaði MJÖÖÖÖÖG mikið í ! Vorum nr.6 á listanum. Þegar ég fór að skoða þetta voru vinnumenn þarna að gera upp gólfin og mála. Ég bað þá vinsamlegast um að segja hinum 5 að nágrannarnir væru mjög svo drykkfelldir og mikið um heróínsölu í götunni. Hann jánkaði og lofaði mér þessu en nei nei nr. 1 sagði já ! ohhh argggg !

Þetta er mikið hitamál og búið að smitast yfir á Rökkvann, hann sagði í fyrradag
"förum bara í húsið og segjum við fólkið nr. 1 DRULLIÐ YKKUR ÚT ÞARNA þetta er okkar hús" já einmitt hehhhh

En við vorum að fá annað tilboð og farin að svara leigumiðluninni með brosköllum og smeðjupósti þannig PLS pls pls !

Annars er annað hitamál núna hvert skal halda um helgina, Stokkhólm, Osló, Flensburg eða Jótlandið? Já tími til að rejse aðeins yeah.

Yfir og út

Mynd dagsins af Rökkvanum vera missa sig í gleðinni strætófarþegum til mikillar ánægju eftir að þeir settust í sætið sem hann var búinn að sitja í heh eða þannig ...

29 June, 2011

Dagur 14


Það er hitabylgja í gangi hérna á jótlandinu og held ég geti ekki meira af sól og klukkan er að ganga 16.30 hérna .. hélt ég mundi aldrei segja þetta en komið fínt í dag!

Íbúðarleitin gengur svona la la , fór að skoða eina í dag sem við gátum fengið og já hverfið var svona humm hvað skal segja það var ein mjög frjálslega vaxin í garðinum sínum að reykja og drekka bjór á hádegi og einn önnur á leið til hennar að joina henni sem var svona rúmlega 60 ára og mjög útbrunnin greyið ..

þær vildu strax fá að vita hvað ég væri eiginlega að gera í þessu hverfi ... ég sagðist vera fara skoða íbúð og spurði hvort það væru e-r börn í hverfinu .. hún var mjög hugsi og var örugglega hugsa hvað barn væri eiginlega og sagði svo " nej nej " já þannig það er out því miður. Sá fyrir mér að ég gæti farið að stunda dagdrykkju þarna í góðum félagsskap hehhh

Annars var Rökkva Þór hent í djúpu laugina í dag, skilinn eftir með 20 dönskum krökkum frá 9-14 í e-u hlaupa , hoppa og skoppa úti bla bla eitthvað activití .. það gekk þrusu vel og langaði hann meira segja vera lengur! Ég gaf upp símann minn ef hann skildi vilja hætta fyrr og var á standby allan tímann en ekkert gerðist!

Húrra fyrir honum og húrra fyrir mig! Happy hour sumsé bara á morgun kl 9 með wanna be nágrannakonum mínum ? Eða kannski ekki ...
Yfir og út! Kv. Sóley!

26 June, 2011

Dagur 11





Verð nú bara segja það að ég er mjög svo að fíla dk ! Sérstaklega þá veðrið, það eru 18 stig í loftinu í dag og er planið að hanga bara niður á " gerviströndinni " og hafa það nice ... spila badminton, liggja í sólbaði, fara í vatnsstríð já já og bara hafa það nice!

Það sem ég er samt alls ekki að fíla er þessi kytra sem við fengum úthlutað í gegnum skólann, hún er alveg fáránlega lítil ! Einnig er engin geymsla, geymsla er greinilega e-ð sem danir spá ekkert rosalega mikið í. Jú fyrirgefðu það er hola niður í bera jörðina ef maður lyftir upp hlera undir teppabút í ganginum .. já mundi ekki einu sinni setja einn ruslapoka þarna niður í þessa dýflissu! Held þetta sé tilvalið fyrir að dömpa líki og ekkert annað ...

Auk þess er ísskápurinn hérna á stærð við frímerki þannig við erum á fullu að leita okkur að annarri íbúð ... ég veit samt og búin að heyra það oft að danir eru með annan standard og ég geri mér grein fyrir því en er að hugsa um fm núna en ekki stórt og kósý baðherbergi eða annað slíkt..... því ég veit líka að það er varla til hérna í dk ... mjög vinsælt að sá sem er í sturtu geti verið að klappa manneskjunni á kollinum sem er á klósettinu því þetta liggur svo þétt saman ! Mjög danskt fyrirbæri sem ég hef séð víða og skil ekki alveg en er open minded fyrir hvers konar breytingum ....já well fyrir utan það að hafa ekki pláss fyrir fötin mín og gesti ...

Yfir og út morgunmatur og svo veðrið bíður!

Myndir dagsins héðan og þaðan en mest úr Álaborgar Zoo sem við kíktum í eitt kveldið ...